|
Sjómannadagshátíð á Eskifirði 2009
,,Líka fyrir landkrabba"
Fimmtudagur 4.júní – á Mjóeyri
Kl. 18:00 Sjósund fyrir alvöru heljarmenni og valkyrjur, heitur pottur i fjörunni eftir sundsprettinn.
Kl.19:00 Grill á staðnum – Mætum með eigin grillmat. Meðlæti, sósur og gos á staðnum.
Kl. 20:00 Nýtt eldstæði vígt – varðeldur og lifandi tónlist.
Föstudagur. 5.júní
Kl. 17:00–19:00 Diskótek fyrir 11 ára og yngri í félagsmiðstöðinni Knellunni – hvetjum krakka af öllum fjörðum til að mæta. 200 kr. aðgangseyrir
Kl.18.30 KFF og ÍR á Eskifjarðarvelli – mætum á völlinn og hvetjum strákana okkar áfram….!!!
Kl. 20:30–23:00 Diskótek fyrir 12 – 16 ára í Knellunni. 200 kr. aðgangseyrir.
Kl. 21:30 Stórtónleikar á frystihúsbryggjunni – Raggi í Brú, Local, Three Amigos & Summary of sound.
Kl. 21:00–24:00 Ball í Valhöll – STRÁKARNIR HENNAR STÍNU – spila gömlu og góðu rokklögin og sígilda harmonikkusmelli. Miðaverð kr.1.500.-
Kl. 00.30 – 03.00 DJ í Valhöll
Laugardagur 6.júní
Kl. 9:00–12:00 “Stálskipasmíði” í Hamri – Strákarnir í Hamri taka vel á móti öllum krökkum og hjálpa þeim að smíða báta.
Kl. 10:00–12:00 Hestamannafélagið Freyja bíður öllum á hestbak inní reiðgerði.
Kl. 13:00 og 14:00 Sigling með einu af flaggskipum íslenska flotans, Aðalsteini Jónssyni - glaðningur fyrir börnin.
Kl. 14:00 Kaffisala eldri borgara í Valhöll.
Kl. 15:00 Dagskrá út á Mjóeyri.
- Kappróður, skráning liða hjá Jens G. jens@fiskimid.is - 899 4348. Takmarkaður fjöldi. Bátarnir settir niður á miðvikudag og verða lausir til æfinga fram á laugardag.
- Belgjaslagur.
- Reipitog milli Eskfirðinga og Reyðfirðinga.
- Sjómennskubikarinn – munu Eskfirðingar halda titlinum?
- “Stálskipum” úr bátasmíðinni fleytt.
- Sunddeild Austra selur pylsur og gos.
- Forsala miða á ball, kr. 2200.- annars kr. 2500 við hurð.
Kl. 23:00 Stórdansleikur í Valhöll – Land og Synir – miðaverð kr. 2500.- 200 krónur af miðaverði renna til minningarsjóðs um Guðlaug Magna frá Fáskrúðsfirði.
Sunnudagur 7.júní
Kl. 11:00 Sjómannadagsmessa.
Kl. 12:00 Athöfn við minningarstyttu um drukknaða sjómenn
- hátíðarræða – sjómaður heiðraður – tónlistaratriði.
Kl.12:30 Dorgveiðikeppni á bræðslubryggjunni – Munið björgunarvestin !!
Kl. 14:00 Í MIÐBÆ ESKIFJARÐR……
Hoppukastalaland (kr.700.- dagspassi) – kaffi og veitingasala i Valhöll – andlitsmálun ofl. ofl.
Glæsileg skemmtiatriði á sviðinu:
HRAFNA IDOLSTJARNA – RAGGI Í BRÚ – HREIMUR OG VIGNIR – EINAR EINSTAKI – STIGAMENN – LEIKSKÓLAKÓRINN OFL OFL…
Kl.15:30 á sparkvellinum.
Eskjumenn bjóða uppá pylsur og gos.
Þrautir – sjómann og ýmsar keppnir.
Verðlaunaafhending fyrir kappróður og dorgveiðikeppni.
Kl.14:30–17:00 Kaffisala Björgunarsveitarinnar Hafrúnar í slysavarnarhúsinu Eskifirði.
Kl.15:00–18:00 Árlegt sjómannadagskaffi björgunarsveitarinnar Ársólar í Þórðarbúð Reyðarfirði.
Kl.16:30 verður kynning á starfi sveitarinnar undanfarið ár og þar verður farið sérstaklega yfir húsbyggingarferlið síðustu 2 ár.
Kaffihúsið Eskifirði 1 árs
Glæsilegur Sjómannadags matseðill alla helgina. Kökubarinn í fínuformi.
Sjóminjasafn Austurlands opið alla helgina milli kl.13:00–17:00.
Ath !!! Ef veður verður ekki hagstætt flytjast skemmtiatriðin inní Valhöll og
atriði á sparkvelli inní gamla íþróttahúsið.
Munum eftir að flagga…..
Sjómannadagsráð vill þakka öllum þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa styrkt og aðstoðað okkur við undirbúning og framkvæmd sjómannadagsins.
|