|


10.febrúar 2012
Komdu út að leika
Mjóeyri
þar sem ævintýraferðin hefst!
Í vetur bjóðum
við upp á skíðapakka og snjósleðadrátt
upp á fjöll fyrir skíða og brettafólk.
Á Mjóeyri er einnig aðstaða fyrir umhirðu
skíða og við kappkostum okkur við að sinna
þörfum hvers og eins með persónulegri þjónustu.
Skíðapakkarninr geta því verið mismunandi
t.d. helgarpakki, páskapakki, sólahringspakki, hóppakki,
gönguskíðapakki o.s.frv.
Hugmynd af skíðapakka má sjá
hér en frekari upplýsingar um útfærslu
og verð má fá hjá Sævari í
síma 6986980 eða með því að senda
e-mail á mjoeyri@vortex.is.
Einnig má skoða heimasíða
Austfirsku Alpanna
í Oddsskarði hér.
4.febrúar 2012
Í byrjun vikunnar barst okkur sú svakalega frétt
að vinur okkar Felix Hentz, sem kom til okkar fyrst fyrir
ári síðan, lést í snjóflóði
sl. sunnudag. Nokkrum dögum fyrir þetta hræðilega
slys birti hann á heimasíðunni sinni þetta
flotta myndband frá dvöl sinni hér og við
viljum leyfa ykkur að njóta þess með okkur
hér.
Blessuð sé minningin um þennan góða
dreng sem fór allt of snemma.
1.janúar 2012
Gleðilegt nýtt ár!
Óskum landsmönnum öllum nær og fjær
gleðilegs árs og þökkum samskiptin á
liðnum árum.
Vonumst til að sjá sem flesta hér fyrir austan
árið 2012.
24.des 2011
Gleðileg jól!
|