|
Dagskrá göngu- og gleðivikunnar ,,Á fætur" í Fjarðabyggð 20.-27.júní 2009:
Laugardagur 20.júní
kl 10:00. Göngu og bátsferð á Barðsneshorn  + 
Mæting við safnahúsið á Norðfirði þaðan sem bátur flytur fólk að Barðsnesi.
Gengið frá Barðsnesbænum og út með Rauðubjörgum og yfir á Mónes. Steingerfingarnir í fjörunni skoðaðir. Gengið út á Barðsneshorn og þaðan inn á Barðsnes.
Ína D. Gísladóttir fer styttri hring og rifjar upp sögur.
Báturinn tekin til baka.
Fararstjóri Sævar Guðjónsson. Gsm. 698-6980.
Verð kr. 2.000.- fyrir fullorðna
Kl 20:00. Sólstöðuganga  
Gengið á Skúmhött í Vöðlavík 881m
Mæting við Karlsstaði, skála Ferðafélags Fjarðamanna í Vöðlavík..
Fararstjóri: Kristinn Þorsteinsson.
Doddi á Skorrastað stjórnar fjallasöng. (Fjallameðferð)
kaffi og skálavaka á Karlsstöðum í Vöðlavík í ferðarlok.
Hægt að panta gistingu í skálanum hjá Ínu. Gsm 894-5477
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.
Kl 21:00. Kvöldvaka
Í Randulffssjóhúsi. Þetta kvöld verður rifjuð upp sagan af hrakningum bresku hermannanna á Eskifjarðarheiði. Breskir hermenn mæta á svæðið og leikin verður lifandi tónlist.
Sunnudagur 21.júní
Kl 9:00. Í fótspor bresku hermannanna.   + 
Raðganga, byggð úr byggð í Fjarðabyggð.
3.Ganga Mæting við Stríðsárasafið á Reyðarfirði
Gengið frá Stríðsárasafninu um Svínadal og Hrævarskörð (744m) til Eskifjarðar.
Þeir sem þora geta haldið áfram upp Svínadal og Túngudal til Eskifjarðar.
Rútuferð til baka að Stríðsárasafninu.
Mjög krefjandi ganga fyrir göngugarpa.
Fararstjóri Sævar Guðjónsson. Gsm. 698-6980.
Verð kr. 2000.- fyrir fullorðna
kl 16:00. Fjölskylduganga á Grænafell í Oddsdal.
Mæting á bílastæðinu neðan við brúna á Oddsdalsá.
Þægileg ganga í fallegu útsýni um Hellisfjörð og Norðfjörð
Fararstjóri: Ína D Gísladóttir Gsm 894-5477.
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.
Kl 21:00. Kvöldvaka
Í Randulffssjóhúsi. Sagnaþulurinn Hálfdán Harladsson les úr bók sinni Norðfjarðarbók m.a. söguna um Blóðbrekkurnar í Oddsdal og Hofs-Höllu ásamt því verður spiluð lifandi tónlist.
Verð 500 fyrir fullorðna.
Mánudagur 22.júní
Kl 10:00. Gengið á Goðaborg 1132m (eitt af fjöllunum fimm í Fjarðabyggð)   
Mæting við Tandrastaði í Fannardal Norðfirði
Fararstjóri Árni Ragnarsson.
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.
kl 17:00. Fjölskylduganga í Helgustaðanámu, gengið um Op til Norðfjarðar. + 
Raðganga, byggð úr byggð í Fjarðabyggð. 4. ganga.
4.ganga. Mæting við Helgustaði. Náman og umhverfi hennar, gil Helgustaðaár og berggangar í því skoðaðir. Fræðsla um sögu námunnar (4 tíma ganga yfir í Oddsdal)..
Fararstjóri: Sævar Guðjónsson GSM 698-6980.
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna
Kl 21:00. Kvöldvaka
Á Mjóeyri við Eskifjörð. Yngri kynslóðin skemmtir.
Þriðjudagur 23.júní
kl 10:00. Gengið á Hólmatind 985m (eitt af fjöllunum fimm í Fjarðabyggð)   
Mæting við Sómastaði í Reyðarfirði
Fararstjóri Kristinn Þorsteinsson.
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.
kl 17:00. Hólmanes, göngu og bátsferð fyrir alla fjölskylduna 
Mæting við gömlu ruslahaugana sunnan Eskifjarðar
Gengið eftir fræðslustígum út með Eskifirði að Skeleyri og út á nesið. Sögur sagðar og fjölbreytt plöntu og fuglalíf skoðað. Gengið inn að Borgarsandi þar sem bátar Bátaleigu Mjóeyrar og ræðarar frá Kajakklúbbnum Kaj bíða göngugarpa.
kl 19:00. Grillveisla á Borgarsandi
Allir siglarar velkomnir í grillið. Silgt til baka.
Frarstjóri Berglind Steina Ingvarsdóttir. Gsm 696-0809
Skipstjóri Sævar Guðjónsson Gsm 698-6980
Verð kr. 1500.- fyrir fullorðna, frítt fyrir börn yngri en 12 ára.
Kl 20:30 Kvöldstund með rithöfundinum Sjón
Upplestur, létt spjall og lifandi tónlist á Randulffssjóhúsi
Kl 21:00. Kvöldvaka
Á Mjóeyri við Eskifjörð. Lifandi tónlist og kajak-klúbburinn Kaj.
Leiga á kajak 500 kr.
Miðvikudagur 24.júní
kl 10:00. Gengið á Hádegisfjall 809m (eitt af fjöllunum fimm í Fjarðabyggð)   
Mæting á bílastæðið við gangnamunnan Reyðarfjarðarmegin
Fararstjóri Árni Ragnarsson.
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna
kl 17:00. Fjölskylduganga í Geithúsárgil á Reyðarfirði 
Mæting við fótboltavöllinn við Geithúsárgil
Gengið inn með gilinu að vestan og niður með því að austan verðu.
Berggangar og fossar skoðaðir og sögur sagðar.
Fararstjóri Þóroddur Helgason.
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.
.
Kl 21:00. Kvöldvaka
Í Randulffssjóhúsi. Leikkonan Jóhanna Vigdís Arnardóttir (Hansa) verður með skemmtiatriði þetta kvöld, ásamt lifandi tónlist.
Verð 500 kr fyrir fullorðna.
Kl. 23:00. ,,Nóttin er ung” Næturganga á Jónsmessunótt. Gengið frá Geithúsá í Oddsdal um Hnúka, Sel, Hellisfjörð, Sveinsstaði og síðan um Götuhjalla til Norðfjarðar.   
Mæting við Geithúsá í Oddsdal. Yoga í átt til sólar í dögun ( fjallameðferð) Takið með ykkur gott nesti og njótið sumarnæturinnar (6 tímar). Fararstjóri: Ína D. Gísladóttir
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.
Fimmtudagur 25.júní
Kl 10:00. Gengið á Kistufell 1239m (eitt af fjöllunum fimm í Fjarðabyggð)   
Mæting við Áreyjar í Reyðarfirði
Fararstjóri Kristinn Þorsteinson.
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.
kl 17:00. Gönguferð fyrir alla fjölskylduna upp með Gilsá í Fáskrúðsfirði. 
Mæting við bretabraggann innan við Brimnes
Gengið upp með ánni, fossar og berggangar skoðaðir. Farið bakvið foss í ánni og gengið niður hinumegin árinnar. Mjög falleg leið.
Fararstjóri Eyþór Friðbergsson Gsm 865-2327
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna, frítt fyrir börn yngri en 12 ára.
Kl 21:00 Kvöldvaka
Í Randulffssjóhúsi. Sagnaþulurinn Berglind Ósk Agnarsdóttir kveður rímur og skemmtir okkur þetta kvöld ásamt lifandi tónlist.
Verð 500kr fyrir fullorðna.
Föstudagur 26.júní
kl 10:00. Gengið á Svartafjall 1021m (eitt af fjöllunum fimm í Fjarðabyggð) 
Mæting á gamla Oddsskarðsveginn Eskifjarðarmegin
Fararstjóri Kristinn Þorsteinson.
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna
kl 17:00. Gengið að Einbúanum sem fallið hefur úr brúnum Gráfells
og að steinboganum í Álftafelli. + 
Mæting við bæinn Stöð í Stöðvarfirði
Fararstjóri Sara Jakobsdóttir Gsm 896-0349
Verð kr. 500.- fyrir fullorðna.
Kl 21:00. Kvöldvaka á Mjóeyri við Eskifjörð
Ýmis óvænt atriði verða þetta kvöldið og mætir m.a. sjóræningi á svæðið. Hver veit nema farið verði í fjársjóðsleit og Hríseyjar Marta láti sjá sig. Einnig verður spiluð lifandi tónlist.
Laugardagur 27. júní
kl 10:00. Gengið um Miðstrandarskarð milli Norðfjarðar og Mjóafjarðar 700m   
Raðganga, byggð úr byggð í Fjarðabyggð.
5.ganga. Mæting við upphaf gönguleiðarinnar innst á Urðarteig Norðfirði. Gengið upp Miðstrandarskarð og yfir Lokatind, niður Gilsárdal að Reykjum þar sem farþegaskipið Skrúður sækir göngugarpa um kl 15:15 og flytur þá að Brekku í Mjóafirði. Boðið verður upp á veitingar í Sólbrekku. Vöfflur og kako 700kr. Kræklingur og Hvítvín 1200kr.
Farið frá Mjóafirði um kl 17:00 og komið til Norðfjarðar um kl 17:30
Fararstjóri Sævar Guðjónsson Gsm 698-6980
Verð kr. 2000.- fyrir fullorðna
ATH.: Veitingar í Mjóafirði eru ekki innifaldar í verði.
kl. 10:00. Morgunganga, fjölskylduganga um Hólatjarnir í Fannardal. 
Mæting innan við Naumamel í Fannardal.
Ævintýraland, hafið með ykkur gott nesti. Dansað fyrir náttúruna, (fjallameðferð), leikir.
Fararstjóri: Ína D. Gísladóttir.
Verð kr 500.- fyrir fullorðna.
kl 14:30. Sigling Norðfjörður –Mjóifjörður –Norðfjörður með farþegaskipinu Skrúð og veitingar í Sólbrekku. Fjölskylduferð
Mæting við safnahúsið á Norðfirði
Siglt frá Norðfirði út með Uxavogstanga fram hjá Páskahelli og meðfram Norðfjarðarnípu sem er eitt hæsta standberg í sjó fram á Íslandi. Ægifagurt útsýni er á þessari siglingaleið m.a. að Dalatanga austasta byggða bóli á Íslandi. Göngugarpar sóttir að Reykjum og síðan lagst að bryggju við Brekku í Mjóafirði þar sem boðið verður upp á veitingar í Sólbrekku.
Vöfflur og kako 700kr.
Kræklingur og Hvítvín 1200kr
Farið frá Mjóafirði um kl 17:00 og komið til Norðfjarðar um kl 17:30
Verð kr. 2000.- fyrir fullorðna
Börn verða að vera í fylgd með fullorðnum!
Bókanir í síma: 8647410
ATH.: Veitingar í Mjóafirði eru ekki innifaldar í verði.
Kl.20:00
Vegleg lokakvöldvaka
Á Mjóeyri við Eskifjörð. Grill, varðeldur, söngur og margt fleira.
-Frítt er fyrir börnin yngri en 16 ára í ferðir gönguvikunnar en skilyrði að þau séu í fylgd með fullorðnum
- Náttúru- og leikjanámskeið verður alla dagana frá kl: 09:30 - 17:00 á vegum Náttúrustofu Austurlands og Ferðaþjónustunnar Mjóeyri. Forgang hafa börn ,,Göngugarpa". Nánari upplýsinar hjá Berglindi í síma 6960809 eða 4771247.
-Afsláttur verður á völdum göngubúnaði í Veiðiflugunni Reyðarfirði og Fjarðarsporti Norðfirði alla vikuna.
-Bátaleigan Mjóeyri og Randulffssjóhús verða opin öll kvöldin frá kl 17:00.
-Í gönguvikunni verður boðið upp á fjallameðferð
-Í Fjarðabyggð er að finna fjölbreytt úrval gisti- og veitingastaða
|