Gistiheimilið er staðsett í fögru og friðsælu umhverfi á Mjóeyri, rétt utan við þéttbýlið við Eskifjörð.
Húsið er nýlega innréttað, var byggt árið 1895 og ber merki gamalla og nýrra tíma. Við leggjum áherslu á hlýlegt og heimilislegt andrúmsloft.

Stórkostlegt útsýni er út Reyðarfjörð, inn Eskifjörð, yfir Hólmanes og Hólmatind. Hægt er að fá morgunmat og kvöldmat ef pantað er með fyrirvara. Boðið er upp á gistingu í fimm, eins til þriggja manna herbergjum með sameiginlegum eldhúskrók, setustofu með sjónvarpi og góða hreinlætissaðstöðu. Útvarp og sjónvarp er í öllum herbergjum. Reyklaust umhverfi er innandyra. Stór sólpallur er við innganginn á neðri hæð og þaðan er einnig gengið inn í svefnskála með svefnpokaplássi. Í svefnskálanum er eldunar- og hreinlætisaðstaða.

Ferðaþjónustan á Mjóeyri býður núna upp á 5 nýbyggð 39m2 smáhýsi. Húsin eru klædd að innan með panil og á gólfi er parket, hvert hús er með verönd og á efri hæð eru svalir með frábæru útsýni. Hvert hús rúmar 6-7 manns. Í setustofu er sjónvarp og útvarp með geislaspilara. Eldhúsið er úbúið með öllu sem þarf til matseldar. Eldavél með ofni, örbylgjuofn
og ísskápur auk áhalda og borðbúnaðar. Í setustofunni er sófi sem auðvelt er að breyta í þægilegt tvíbreytt rúm.
Á efri hæðinn er eitt herbergi með 2 rúmum Baðherbergið er á neðri hæðinni.
og svefnloft með pláss fyrir 2-3 persónur.Öll húsin eru með aðgangi að interneti.